03.11.14
Fundurinn var haldinn í Ökuskóla Björns í Sunnuhlíð og bar yfirskriftina ,,Tónlist“. Fundurinn var í umsjá Auðuns og Elvars Ö.
Dagskrá:
- Jón formaður setti fundinn 20:00
- Kynningarhringur
- Elvar Örn las tilgang roundtable
- Skýrsla síðasta fundar lesin af ritara.
- Nýir félagar teknir inn (stjórn). Birkir Baldvinsson og Valdimar Heiðar Valsson
- Vegna leyfis Davíðs IRO þá mun Elvar Örn taka við því embætti og er því IRO RT5 Akureyri.
- Kynning og kosning um nýja félaga (Auðunn og stjórn). Haukur Gröndal og Guðmundur Óskar Helgason bornir upp og báðir samþykktir.
- Númeramót í Belgíu (Elvar og Óttar). Óttar fór yfir ferðasjóð RT5 og RTÍ, hvernig þeim er úthlutað. Elvar Örn var svo með almenna kynningu á númeramótinu í Belgíu. Ákveðið var að stjórn myndi skrifa reglur um úthlutun ferðasjóðs RT5
- Fundur afhentur Auðunn og Elvari Örn. Þeir héldu tónlistar pubquiz. Þar sem lið áttu að svara ýmsum tónlistartengdum spurningum ásamt hljóðbútum. 3. sæti voru Hjálmar og Þói, jafnir í 1. og 2. sæti voru Helgi, Jói og Eyjó á móti Sigga, Nonna og Sverrir, úrslit voru kljáð með bráðabana þar sem Siggi, Nonni og Sverrir höfðu betur.
- Önnur mál:
Áskorun á milli RT4, RT5 og RT7. RT7 sér um þann fund, ýta á alla sem komast að mæta, nokkrir frá RT15 munu einnig mæta.
Næsti fundur (Fundur 609, Nýjasta tækni og vísindi, Elvar Örn, Jóhann og Valdimar sjá um fundinn)
Helgi sagði frá fyrsta fundi RT15 á Sauðárkróki
Óskar býður okkur ásamt mökum í 40 ára afmælið sitt þann 28 nóvember kl 19:00 í Funaborg á Melgerðismelum.
Óttar var með umræðu um hvort við vildum bjóða RT15 á jólafund, menn tóku vel í það. - Óttar siðameistari fór yfir sektir fundar.
- Fundi slitið kl 22:50
Eftirtaldir sátu fundinn:
Auðunn, Birgir Baldvinsson, Birkir Örn, Elvar Örn, Eyjólfur, Georg, Helgi, Hjálmar, Jóhann, Jón, Konni, Óskar, Óttar, Páll, Rúnar, Siggi Óli, Sverrir og Valdimar. Þórólfur mætti seint.
Eftirtaldir boðuðu forföll:
Daníel, Davíð, Elvar Lund, Njáll, Stefán og Vignir.