27. sept
RT5 menn voru plataðir á frjálsum fundi til að mæta án handklæðis en í
íþróttarfötum því að okkur var sagt að um létta afþreyingu væri að ræða.
Svo reyndist aldeilis ekki því að byrjað var á massívri upphitun inní hinu nýja fimleikahúsi Akureyrar og að sjálfsögðu urðum við að prufa öll nýju tækin. Fundurinn var mjög skemmtilegur að öllu leyti og góðar veitingar í lokinn. Ritari man ekki hvenar hann hló jafnmikið og á þessum fundi en myndirnar tala sínu máli.
Jón og Jón voru með fundinn