Pílumót Húsavík

Næsta föstudag (29 okt) verður pílumót RT 4-5 og 7 á Húsavík.
Planið er að fara með Sjöumönnum til Húsavíkur og væri skemmtilegast að taka Kálf saman.
Spurning er hversu margir mæta frá RT 5?
Endilega látið vita svo við getu pantað bíl við hæfi.
Gerir ráð fyrir að við leggjum af stað um kvöldmatarleitið og komum til baka rétt uppúr miðnætti (óstaðfest tímasetning).

Ratleikur

Í gær var árlegur ratleikur RT5.

Skipt var upp í þrjú lið, tvö þriggja manna og eitt fjögurra manna. Liðin þrjú brunuðu af stað upp úr klukkan 20 og þeystust um allan bæ á mis löglegum hraða. Liðin áttu að leysa hinar ýmsu þrautir m.a. að spæla egg, gera armbeygjur, semja vísu og margt fleira.

  Lið nr. 3 var langfljótast að klára leikinn eða um 20 mínútum á undan næsta liði en leikurinn var stigakeppni og verða úrslit tilkynnt á næsta fundi.